8 Ágúst 2012 12:00

Erlendur ferðamaður slasaðist þegar hann datt í rúllustiga í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í fyrradag. Maðurinn hrasaði fram fyrir sig í fyrsta þrepi stigans, að því er lögreglumönnum á vettvangi var tjáð, og féll  niður með þeim afleiðingum  að höfuð hans skall á einu þrepanna. Hann hlaut hlaut tvo skurði á höfði, auk skrámu á sköflungi. Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem gert var að sárum hans.