1 Ágúst 2012 12:00

Brot 107 ökumanna voru mynduð á Álftanesvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álftanesveg í austurátt, við Gálgahraunsveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 200 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 54%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 68 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fjörutíu og fimm óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 88. 

Vöktun lögreglunnar á Álftanesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.