13 September 2012 12:00

Brot 15 ökumanna voru mynduð í Hamravík í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamravík í vesturátt, að Víkurskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 44 ökutæki þessa akstursleið og því ók um þriðjungur ökumanna, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira.

Vöktun lögreglunnar í Hamravík er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.