10 September 2012 12:00

Brot 86 ökumanna voru mynduð á Digranesvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Digranesveg í austurátt, við Kópavogsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 250 ökutæki þessa akstursleið og því ók um þriðjungur ökumanna, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56. 

Vöktun lögreglunnar á Digranesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað. 

Vöktun lögreglunnar á Digranesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.