14 Mars 2013 12:00

Brot 3 ökumanna voru mynduð á Eggertsgötu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eggertsgötu í vesturátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 31 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáeinir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar á Eggertsgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.