28 Nóvember 2013 12:00

Þrjú hundruð sjötíu og fimm ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni á mánudags- og þriðjudagskvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Tveir ökumenn reyndust ölvaðir við stýrið og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér.