20 Nóvember 2013 12:00

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Laugalæk í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Laugalæk í suðurátt, við Bugðulæk. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 59 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Laugalæk er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.