20 Maí 2014 12:00

Brot 33 ökumanna voru mynduð í Grænatúni í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grænatún í austurátt, við Bæjartún. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 71 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 46%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sex óku á 50 km hraða eða meira. 

Vöktun lögreglunnar í Grænatúni er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.