19 Nóvember 2014 12:00

Brot 22 ökumanna voru mynduð í Vesturvör í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturvör í vesturátt, á móts við Vesturvör 12. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 125 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í fimmtungur ökumanna, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 72. 

Vöktun lögreglunnar í Vesturvör er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.