7 Nóvember 2014 12:00

Brot 42 ökumanna voru mynduð í Jónsgeisla í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Jónsgeisla í norðurátt, að Reynisvatnsvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 136 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 31%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 79. 

Vöktun lögreglunnar í Jónsgeisla er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.