14 Apríl 2023 10:46

Til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi er mál sem upp kom í apríl mánuði þar sem barn, í gáleysi, hafði innbyrt sælgæti sem innihélt ólögleg fíkniefni.  Barnið var flutt á heilbrigðisstofnun og ekki vitað annað en að það muni ná sér að fullu.   Svona mál koma því miður upp annað slagið hér á landi og eru þau litin mjög alvarlegum augum. Einhverra hluta vegna er efnum komið fyrir í hlaup „fígúrum“ dulbúið sem sælgæti sem oftast er markaðsett fyrir börn. Rannsókn málsins beinist m.a. að því að kanna hvort um einangrað tilvik á svæðinu sé að ræða en það skal tekið fram að frekari upplýsingar um hana verða ekki gefna á þessu stigi málsins.  Lögreglan hvetur fólk til að vera á varðbergi gagnvart slíkum ófögnuði og ef að fólk hefur upplýsingar þessu tengt að hafa samband við lögreglu. Vakin er athygli á því að slíkar upplýsingar eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.