29 Október 2018 10:51

Karlmaðurinn sem lést í umferðarslysinu á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í gærmorgun var pólskur ríkisborgari á fertugsaldri. Hann hafði verið búsettur hérlendis um tíma og starfaði sem iðnaðarmaður. Maðurinn var farþegi í annarri bifreiðinni, en ökumaður hennar hefur verið úrskurðaður í farbann til 23. nóvember.