1 Október 2009 12:00

Karl á fimmtugsaldri var handtekinn fyrir að stela hangikjötslæri úr matvöruverslun í Reykjavík um miðjan dag í gær. Maðurinn stakk inn á sig hangikjötslærinu og gekk síðan út úr versluninni án þess að greiða fyrir það en þá var för hans stöðvuð. Um svipað leyti voru tvær unglingsstúlkur staðnar að hnupli í Kópavogi en þær freistuðu þess að stela snyrtivörum og skartgripum. Síðdegis var kona á fertugsaldri handtekin fyrir þjófnað í verslunarmiðstöð í  Kópavogi en hún hafði troðfyllt innkaupakerru af ýmsum varningi og ekki greitt fyrir hann. Konunni tókst að komast með varninginn út á bifreiðaplan sem þarna er en þar var hún handtekin.