28 Ágúst 2012 12:00

Annað kvöld, miðvikudaginn 29. ágúst, verður unnið við viðgerð á brúnni yfir Suðurlandsveg sem tengir saman Hádegismóa og Bæjarháls í Árbæ. Vegna þessa verður lokað fyrir umferð frá Hádegismóum og inn á aðrein á Suðurlandsveg til norðurs. Ráðgert er að verkið hefjist klukkan 21 og standi fram á nótt. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og aka varlega um vinnusvæðið.