12 Ágúst 2016 16:19

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Skipholti í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skipholt í vesturátt, við Stúfholt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 177 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema þremur ekið á löglegum hraða. Hinir brotlegu mældust á 39, 43 og 45 en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Skipholti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.