2 Mars 2007 12:00

Hann var heldur seinheppinn ökumaðurinn sem var tekinn fyrir hraðakstur á Kringlumýrarbraut í gærkvöld. Viðkomandi er karlmaður á þrítugsaldri sem hefur oft áður verið staðinn að umferðarlagabrotum, þ.á.m. hraðakstri. Í stað þess að hægja á akstrinum og hlíta hámarkshraða virðist maðurinn hafa haldið að radarvari myndi forða honum frá frekari vandræðum. Hann fór því í gær og keypti slíkan grip og kom honum fyrir í bílnum sínum. En allt kom fyrir ekki og fáeinum klukkutímum síðar var hann stöðvaður á Kringlumýrarbraut eins og fyrr sagði. Nú mældist bíll hans á 117 km hraða og fyrir vikið fær maðurinn enn eina sektina. Að þessu sinni verður hún 50 þúsund krónur.

Maðurinn átti erfitt með að leyna vonbrigðum sínum þegar lögreglumenn stöðvuðu hann við aksturinn en svekkelsi hans beindist þó fyrst og fremst að söluaðila radarvarans. Kvaðst maðurinn ætla að fara með radarvarann á morgun (í dag) og krefjast endurgreiðslu.