22 Mars 2023 13:29

Skráð voru 660 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í febrúar og fjölgaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir febrúar 2023.

Tilkynningum um þjófnaði fækkaði á milli mánaða sem og tilkynningar um innbrot. Það sem af er ári hafa borist um 13 prósent fleiri tilkynningar um innbrot en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Alls bárust 111 tilkynningar um ofbeldisbrot í febrúar. Tilkynningar um heimilisofbeldi fjölgaði lítillega á milli mánaða og fóru úr 63 tilkynningum í janúar í 65 tilkynningar í febrúar. Það sem af er ári hafa borist um sjö prósent færri tilkynningar um heimilisofbeldi samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan.

Alls bárust tíu beiðnir um leit að börnum og ungmennum í febrúar og fjölgaði þessum beiðnum á milli mánaða.

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði töluvert á milli mánaða og voru sjö stórfelld fíkniefnabrot skráð í febrúar. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fjölgaði á milli mánaða en tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur fækkaði.

Í janúar voru skráð 625 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um tvö prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.