15 Maí 2019 09:53

Brot 17 ökumanna voru mynduð á Barónsstíg í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Barónsstíg í suðurátt, á móts við Barónsstíg 78. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 105 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 46.

Vöktun lögreglunnar á Barónsstíg er liður í umferðareftirliti á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.