3 Maí 2012 12:00

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Barónsstíg í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Barónsstíg í suðurátt, við Freyjugötu. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 72 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í fimmtungur ökumanna, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tveimur ökutækjum var ekið áberandi hraðast, annað mældist á 51 en hitt á 62. 

Vöktun lögreglunnar á Barónsstíg er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.