12 Október 2022 12:46

Brot 99 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík á mánudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurátt, á móts við Rjúpufell. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 633 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 92.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.