5 Mars 2009 12:00

Brot 225 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, að Arnarnesvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 1.290 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða rúmlega 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tuttugu og sex óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 115.