8 Október 2020 09:15

Brot 56 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá föstudeginum 2. október til miðvikudagsins 7. október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á fimm sólarhringum fóru 29.818 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 91. Fimm ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.