20 Ágúst 2009 12:00

Brot 434 ökumanna voru mynduð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu á þriðjudag og miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem ekið var Hringbraut í vestur og yfir fyrrnefnd gatnamót. Á tæplega tuttugu og þremur klukkustundum fóru 12.809 ökutæki þessa akstursleið og því óku rúmlega 3% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sextíu og þrír óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 108. Á sama tímabili óku fimm gegn rauðu ljósi á þessari akstursleið.