31 Mars 2009 12:00

Þrjátíu og átta ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 38 ökumanna mynduð á Hvaleyrarbraut en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í norðurátt, á milli Brekkutraðar og Skipalóns. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 152 ökutæki þessa akstursleið og því óku 25% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 68 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tólf óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 85.  

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Hvaleyrarbraut. Þá óku hlutfallslega færri of hratt eða yfir afskiptahraða, eða 14%. Meðalhraði hinna brotlegu er hinsvegar svipaður á milli ára.