13 Apríl 2011 12:00

Brot 17 ökumanna voru mynduð á Hvannavöllum í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hvannavelli í norðurátt, að Kvistavöllum. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 49 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrír óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 55.

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið hærra, eða 43-72%, sem og meðalhraði hinna brotlegu. Hér þokast því í rétta átt en bættar merkingar og hraðahindrandi aðgerðir á Hvannavöllum, sem ráðist hefur verið í, hjálpa til í þeim efnum.