16 Apríl 2009 12:00

Tuttugu og einn var staðinn að hraðakstri á Kóravegi í Kópavogi í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði var brot 21 ökumanns myndað á Kóravegi en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, að Drekakór. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 39 ökutæki þessa akstursleið og því óku 54% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrír óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 53.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Kóravegi og niðurstaðan er nánast óbreytt. Þá óku 55% of hratt eða yfir afskiptahraða en meðalhraði hinna brotlegu var eilítið hærri, eða 46 km/klst.