16 Ágúst 2018 10:02
Brot 122 ökumanna voru mynduð á Kringlumýrarbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut í suðurátt, að N1 í Fossvogi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.154 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Nítján óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 118.
Vöktun lögreglunnar á Kringlumýrarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.