25 Janúar 2023 14:32

Brot 53 ökumanna voru mynduð á Langholtsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Langholtsveg í norðurátt, að Holtavegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 141 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar á Langholtsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.