22 Október 2010 12:00

Brot 50 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, þ.e. í Hvassahrauni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 317 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 104 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Fjórir óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 117.