29 Ágúst 2019 12:19

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Reynisvatnsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reynisvatnsveg í vesturátt, við Kapellustíg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 33 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 45%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 70 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 102.

Vöktun lögreglunnar á Reynisvatnsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.