11 Júní 2019 09:59

Brot 334 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá þriðjudeginum 4. júní til föstudagsins 7. júní. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á þremur sólarhringum fóru 27.650 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 80 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sjö óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 148.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.