2 Febrúar 2021 10:38

Brot 98 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá föstudeginum 29. janúar til mánudagsins 1. febrúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á þremur sólarhringum fóru 14.818 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 107. Einu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.