27 Ágúst 2018 15:55

Brot 330 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá föstudeginum 24. ágúst til mánudagsins 27. ágúst. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á þremur dögum fóru 17.271 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Þrettán óku á 100 km hraða eða meira.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.