10 Apríl 2018 08:57
Brot 67 ökumanna voru mynduð á Sogavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sogaveg í austurátt, á móts við Sogaveg 220. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 105 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 64%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tólf óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 68.
Vöktun lögreglunnar á Sogavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.