25 September 2017 13:47

Brot 34 ökumanna voru mynduð á Stórhöfða í Reykjavík á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stórhöfða í austurátt, á móts við Stórhöfða 33. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 140 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 80.

Vöktun lögreglunnar á Stórhöfða er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.