27 Júlí 2018 09:16

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í vesturátt, á móts við Mosfell í Mosfellsdal. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 126 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 99.

Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.