24 September 2021 11:16

Brot 43 ökumanna voru mynduð á Vesturgötu í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturgötu í austurátt, við Norðurbakka 19-25. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 154 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar á Vesturgötu er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.