28 Mars 2018 16:14

Brot 55 ökumanna voru mynduð á Vesturgötu í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturgötu í austurátt, við Norðurbakka 19-25. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 167 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira, en sá sem hraðast ók mældist á 64.

Vöktun lögreglunnar á Vesturgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.