20 Mars 2009 12:00

Fjörutíu og þrír ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Vífilsstaðavegi í Garðabæ í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 43 ökumanna mynduð á Vífilsstaðavegi en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í norðurátt við Löngulínu, á móts við Sjálandsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 166 ökutæki þessa akstursleið og því óku 26% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fjórir óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 84.  Fjöldi skólabarna átti leið þarna um á meðan vöktunin stóð yfir. 

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Vífilsstaðavegi. Þá óku hlutfallslega færri of hratt eða yfir afskiptahraða, eða 24%. Meðalhraði hinna brotlegu var sömuleiðis lægri í fyrra, eða 65 km/klst. Þróunin á milli ára er því ekki góð og henni verður að snúa við.