15 Júní 2016 15:40

Brot 7 ökumanna voru mynduð í Arnarhöfða í Mosfellsbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarhöfða í norðurátt, við Fálkahöfða. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 24 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Arnarhöfða er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.