16 Júní 2009 12:00

Tuttugu og sex voru staðnir að hraðakstri í Arnarhöfða í Mosfellsbæ miðvikudaginn 10. júní sl. en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar 10. júní eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 26 ökumanna mynduð í Arnarhöfða en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í norðurátt, við Fálkahöfða. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 48 ökutæki þessa akstursleið og því óku 54% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrír óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 56.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar í Arnarhöfða en þá óku 10% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var mun minni umferð um götuna (31 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var rúmlega 41 km/klst.