25 Mars 2009 12:00

Átta ökumenn voru staðnir að hraðakstri í Háholti í Hafnarfirði í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 8 ökumanna mynduð í Háholti en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, nærri leikskólanum Álfasteini. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 23 ökutæki þessa akstursleið og því óku 35% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði, hraðahindranir, gangbrautir og fyrrnefndur leikskóli. Sá sem hraðast ók mældist á 45.  

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Háholti. Þá óku hlutfallslega færri of hratt eða yfir afskiptahraða, eða 25%. Athygli vekur hinsvegar að í fyrra var meðalhraði hinna brotlegu nokkru hærri, eða 45 km/klst.