7 Júní 2022 11:58

Brot 11 ökumanna voru mynduð í Hamrahlíð í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamrahlíð í vesturátt, á móts við Hlíðaskóla. Á einni klukkustund, um hádegi, fóru 104 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn,  eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar í Hamrahlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.