13 Mars 2009 12:00

Fjörutíu og fimm ökumenn voru staðnir að hraðakstri í Hlíðarbergi í Hafnarfirði í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 45 ökumanna mynduð í Hlíðarbergi en á þessum stað er grunnskóli (Setbergsskóli) við götuna, merktar gangbrautir og tvær hraðahindranir. Fylgst var með ökutækjum, eftir hádegi, sem var ekið í vesturátt en þarna er 30 km hámarkshraði. Á einni klukkustund fóru 99 ökutæki þessa akstursleið og því óku 45% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Sá sem hraðast ók mældist á 51. 

Fyrir nákvæmlega ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað við Hlíðarberg en þá óku hlutfallslega mun færri, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Niðurstaðan nú er því enn meira áhyggjuefni. Athygli vekur hinsvegar að meðalhraði hinna brotlegu er lægri núna en í fyrra. Við hraðamælinguna í gær var meðalhraðinn 42 km/klst en var 44 í mars á síðasta ári.