18 Janúar 2020 10:06

Við vekjum athygli á slæmu veðurútliti, en í kvöld og nótt (aðfaranótt sunnudags) er spáð suðaustan hvassviðri eða stormi á höfuðborgarsvæðinu með talsverðri rigningu og hlýnandi veðri.

Búast má við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikil hálka getur myndast þar sem rignir á klakabunka eða þjappaðan snjó. Mikilvægt er að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns og er fólk eindregið hvatt til þess.

Samkvæmt spá Veðurstofunnar verður hvassvirði/stormur frá kl. 23 í kvöld og fram til kl. 6 í nótt (aðfaranótt sunnudags) og gildir þá gul viðvörun fyrir höfuðborgarsvæðið á sama tíma.

Viðvaranir frá Veðurstofunni