2 Mars 2012 12:00

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Sundlaugavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sundlaugaveg í vesturátt, á móts við Laugardalslaug. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 286 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema þremur ekið á löglegum hraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 71 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 81.

Vöktun lögreglunnar á Sundlaugavegi er liður í umferðareftirliti hennar í nágrenni við skóla á höfuðborgarsvæðinu.