19 Október 2011 12:00

Fjórir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur í Reykjavík í gær og nótt. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 29-72 ára. Einn þeirra hefur aldrei öðlast ökuréttindi og annar var með fíkniefni í fórum sínum.