25 Janúar 2013 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar fólk við því að hætta sér út á Reykjavíkurtjörn, en ísinn þar er ótraustur. Fyrr í dag féll unglingspiltur á reiðhjóli niður um vök á Tjörninni, en hann átti í töluverðum erfiðleikum með að komast upp úr aftur. Lögreglan og sjúkralið komu á vettvang, en meiðsli piltsins voru ekki talin alvarleg.