17 Febrúar 2010 12:00

Rúðubrjótur var handtekinn í Reykjavík í nótt. Sá braut rúðu í fjölbýlishúsi en ekki er vitað hvað honum gekk til. Rúðubrjóturinn, karl á fimmtugsaldri, var færður í fangageymslu en hann var ölvaður.