16 Júní 2015 15:23

Erlenda parið sem lögreglan á Vestfjörðum handtók um hádegisbilið í gær á Ströndum, grunað um þjófnað, var fært til yfirheyrslu á Ísafirði.  Nú í morgun gaf lögreglustjórinn á Vestfjörðum út ákæru vegna þeirra brota sem parið er talið hafa framið á Ströndum undanfarna daga.  Þau voru leidd fyrir Héraðsdóm Vestfjarða í framhaldinu.  Parið gekkst við þjófnuðum á tveimur stöðum, annars vegar þjófnað á matvælum úr reykkofa á Drangsnesi og hins vegar á ýmsum varningi úr verslun Kaupfélags Strandamanna á Norðurfirði. Nú rétt fyrir hádegið kvað héraðsdómur upp dóm.  Þau hlutu bæði 60 daga fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár. 

 Parinu hefur verið sleppt lausu og hefur Útlendingastofnun verið gert viðvart um dóminn.